Kjarasamningar
Viska gerir kjarasamninga fyrir hönd sinna félaga. Þessir miðlægu samningar eru sá grunnur sem mögulegir stofnana- eða fyrirtækjasamningar byggja síðan ofan á, eftir því sem við á hjá hverjum vinnustað. Hér er að finna gildandi kjarasamninga Visku við sína viðsemjendur.
Kjarasamningur við ríkið
Kjarasamningur Visku við ríkissjóð gildir til 31. mars 2024 en í honum var samið um fastar launahækkanir í launatöflu. Yfirstandandi eru nú kjaraviðræður um framleningu og breytingar á þessum samningi.
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg
Kjarasamningur Visku við Reykjavíkurborg gildir til 31. mars 2024 en í honum var samið um fastar launahækkanir í launatöflu. Yfirstandandi eru nú kjaraviðræður um framleningu og breytingar á þessum samningi.
Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga
Kjarasamningur Visku við Samband íslenskra sveitarfélaga gildir til 31. mars 2024 en í honum var samið um fastar launahækkanir í launatöflu. Yfirstandandi eru nú kjaraviðræður um framleningu og breytingar á þessum samningi.
Kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins
Kjarasamningur Visku við Samtök atvinnulífsins er ótímabundinn réttindasamningur sem kveður ekki á um fjárhæð launa. Félagsfólk á almennum vinnumarkaði semur um laun og hefur aðgang að kjaraþjónustu Visku.
Kjarasamningur við Samtök fyrirtækja í velferðaþjónustu