Beint í efni

Sameining stéttarfélaga til skoðunar

Þrjú aðildarfélög BHM hefja viðræður um sameiningu félaganna í nýtt öflugt stéttarfélag.

Aðalfundur Fræðagarðs 2023 samþykkti tillögu þess efnis að hefja viðræður við önnur stéttarfélög háskólamenntaðs fólks um að sameinast í nýtt og öflugt stéttarfélag sérfræðinga. Markmið viðræðnanna væri að kanna kosti þess að skapa saman stéttarfélag sem byggir á traustum og fjölbreyttum grunni og er í stakk búið til að takast á við áskoranir á vinnumarkaði framtíðarinnar.

Nú hefur Fræðagarður hafið viðræður við tvö aðildarfélög innan BHM, Félag íslenskra félagsvísindamanna (FÍF) og Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga (SBU), að byggja upp nýtt öflugt stéttarfélag fyrir 21. öldina, stéttarfélag sérfræðinga sem mætir breyttum kröfum á vinnumarkaði. Stjórnir félaganna horfa sérstaklega til reynslu systursamtaka sinna á Norðurlöndunum þar sem rótgróin stéttarfélög hafa sameinast í kröftugar einingar.

Sameiningaviðræðurnar hófust formlega þann 30. mars síðastliðinn þegar stjórnir félaganna þriggja samþykktu verkáætlun og skipulag fyrir starfið framundan. Settir hafa verið á laggirnar vinnuhópar um helstu áskoranir og tækifæri sem felast í þessari vegferð. Stjórnir félaganna funda næst saman þann 22. apríl og verður þá freistað að ganga frá breiðu línunum í viðræðunum.

Fræðagarður leggur mikla áherslu á að starfið framundan sé gagnsætt og að félagsfólki gefist tækifæri að taka þátt í stefnumótun nýs félags. Gert er ráð fyrir að haldið verði opið stefnumótunarþing á haustmánuðum þar sem félagsfólki félaganna þriggja er boðið að móta saman stefnu og gildi hins nýja félags.

„Fræðagarður hefur síðustu áratugina unnið náið með FÍF og SBU að kjaramálum og þjónustu við félagsfólk. Samstarfið hefur reynst okkur gjöfult og löngu tímabært að setjast niður og ræða hvort að saman getum við skapað stórt stéttarfélag sem hefur slagkraft til að móta vinnumarkað framtíðarinnar. Við bjóðum velkomin öll sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu samtali.“

Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, formaður Fræðagarðs.
F.v.t.h. Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Fræðagarðs, Kristmundur Þór Ólafsson formaður FÍF og Kristjana Mjöll Hjörvar Jónsdóttir formaður SBU.