Skip to content

Fræðagarðsfólk fjölmennti á aðalfund BHM

Fræðagarðsfólk fjölmennti á aðalfund BHM þar sem samþykkt var ályktun um mikilvægi þess að leiðrétta skakkt verðmætamat á vinnumarkaði án tafar. Að mati fundarins er slík leiðrétting nauðsynleg til að mæta skorti á fagmenntuðu fólki til starfa í heilbrigðiskerfinu.

Fræðagarður er stærsta aðildarfélag innan BHM, og 34 fulltrúar sátu fundinn fyrir hönd félagsins, þar sem enn fremur var samþykkt ný stefna bandalagsins, umtalsverðar breytingar á lögum bandalagsins og breyting á aðildargjöldum.

Aðalfundafulltrúar Fræðagarðs

Ályktanir aðalfundar BHM í heild sinni

Kerfisbundið vanmat á störfum kvenna er óásættanlegt. Rannsóknir sýna að kynskiptur vinnumarkaður er meginorsök kynbundins launamunar. Við krefjumst þess að tillögur starfshóps forsætisráðherra um endurmat á virði kvennastarfa frá 2021 komi til framkvæmda. Háskólamenntun kvenna er jafn mikils virði og karla og það á að endurspeglast í launasetningu. Leiðréttum skakkt verðmætamat á vinnumarkaði strax.

BHM krefst þess sérstaklega að yfirlýsing undirrituð af forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra frá 2018 komi til framkvæmda. Íslenskt samfélag er statt í kreppu nýliðunar- og mönnunarvanda í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Leiðrétting á launasetningu hefðbundinna kvennastarfa er þannig nauðsynleg til að mæta skorti á fagmenntuðu fólki til starfa í velferðarkerfinu.