Beint í efni

Vilt þú taka þátt í að búa til nýtt stéttarfélag?

Stefna nýs stéttarfélags verður mótuð á opnu stefnumótunarþingi

Fyrr á þessu ári samþykkti aðalfundur Fræðagarðs tillögu þess efnis að hefja viðræður við önnur stéttarfélög háskólamenntaðs fólks um að sameinast í nýtt og öflugt stéttarfélag sérfræðinga. Stjórn og starfsfólk félagsins hafa unnið að stofnun þessa nýja stéttarfélags síðan í lok mars á þessu ári. Sú vinna hefur gengið vonum framar og kl. 10:00 laugardaginn 16. september gefst félagsfólki Fræðagarðs tækifæri til að taka þátt, þar sem boðað hefur verið til stefnumótunarþings nýs félags á Hilton Reykjavík Nordica.

Skráning

Við hvetjum allt félagsfólk til þess að taka þátt en til þess að gera það þá þarf að skrá sig. Athugið að takmarkaður fjöldi getur tekið þátt en laust pláss er fyrir 70 manns og lokar skráningu þegar þeim fjölda hefur verið náð.

Dagskrá

10:00 – 10:15: Fundarstjóri opnar þingið og ávörp frá formönnum FÍF, Fræðagarðs og SBU

10:15 – 12:00: Hópavinna

  • Vinnumarkaður
  • Jafnrétti
  • Umhverfismál
  • Menntun og fræðsla

12:00 – 12:45: Hádegismatur

12:45 – 13:30: Sameinað þing, farið yfir niðurstöður hópastarfs og kosið um stefnu

13:30 – 13:50: Hópar kynna áherslur sínar

13:50 – 14:00: Þinginu slitið

Fundarstjóri er Guðrún Ragnarsdóttir ráðgjafi hjá Strategíu.