Beint í efni

Styrkir og sjóðir Fræðagarðs

Með aðild að Fræðagarði opnast möguleikar á margvíslegum styrkjum. Þar skiptir þátttaka félagsins í BHM miklu máli.

Fræðagarður er aðili að BHM og félagar okkar geta sótt um ýmsa styrki úr sjóðum sem þjónustaðir eru af BHM:

Sótt er um alla ofangreinda styrki gegnum Mínar síður BHM

Þjónustuver BHM veitir félagsmönnum aðildarfélaga upplýsingar og aðstoð vegna umsókna um styrki úr sjóðum bandalagsins, umsókna um orlofskosti o.fl.

Vísindasjóður Fræðagarðs

Aðild að Fræðagarði opnar á úthlutun úr vísindasjóði félagsins en sjóðnum er ætlað að vera kaupauki fyrir félaga sem greiddur er út einu sinni á ári. Á almenna vinnumarkaðinum er aðild að vísindasjóði valkvæð en greitt er fyrir alla félaga sem starfa hjá sveitarfélögum. Styrkupphæðin er miðuð við innborgun í sjóðinn á tímabilinu 1. janúar - 31. desember en vinnuveitandi greiðir 1.5% af dagvinnulaunum í vísindasjóð.

Félagar sem greitt hefur verið fyrir í vísindasjóð fá úthlutað úr sjóðnum á tímabilunu janúar til febrúar ár hvert. Félagar þurfa ekki að sækja sérstaklega um úthlutun úr vísindasjóðnum og fá senda tilkynningu í tölvupósti þegar greiðsla hefur farið fram.

Sjá nánar

Styrkur til atvinnulausra

Fræðagarður styður við bakið á félagsfólki sem er atvinnulaust og kýs að greiða félagsgjald af atvinnuleysisbótum til félagsins. Atvinnulaust félagsfólk sem greiðir iðgjöld til Fræðagarðs af atvinnuleysisbótum getur sótt um styrk fyrir allt að 100.000 kr. á ári til að sækja endurmenntun eða sjálfsstyrkingu að eigin vali. Skrifstofa Fræðagarðs tekur á móti umsóknum og afgreiðir þær en hægt er að senda inn umsókn með því að senda inn fyrirspurn í gegnum vef Fræðagarðs. Athugið að styrkgreiðslur eru greiddar beint til framkvæmdaaðila.

Sjá nánar

Aðstoð Fræðagarðs

Ef þú ert enn með spurningar sem ekki er svarað hér fyrir ofan hvetjum við þig til að hafa samband við skrifstofu Fræðagarðs.

Þú getur sent inn fyrirspurn, til dæmis varðandi réttindi atvinnulausra félaga.

Þú getur líka stofnað formlega þjónustubeiðni sem fer sjálfkrafa inn í málaskrár kerfi okkar, til dæmis vegna umfangsmikilla eða viðkvæmra erinda

Loks má bóka símtal við sérfræðing, ef þú heldur að það eigi betur við.

Þjónustuskrifstofa Fræðagarðs er til húsa í Borgartúni 6 (sama húsi og BHM). Hún er opin alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-16. Síminn er 595 5165.