Kjarasamningur við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu samþykktur
Atkvæðagreiðslu um kjarasamning við SFV er lokið
Atkvæðagreiðslu um kjarasamning milli félagsins og Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) lauk í dag kl. 12:00.
Samningurinn er með gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.
Fjöldi á kjörskrá var 59 og greidd atkvæði voru 24 eða 41%. 24 (100%) voru samþykk samningnum.
Nýjan kjarasamning má finna hér.