Kjarasamningur við Reykjavíkurborg samþykktur
Atkvæðagreiðslu um kjarasamning við Reykjavíkurborg er lokið
Atkvæðagreiðslu um kjarasamning milli Fræðagarðs og Reykjavíkurborgar lauk í dag kl. 10:00.
Samningurinn er með gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.
Fjöldi á kjörskrá var 292 og greidd atkvæði voru 104 eða 36%. 97 (93%) voru samþykk og 7 (7%) höfnuðu samningnum.