Beint í efni

Aukaaðalfundur Fræðagarðs

Tilefni fundarins er stofnun Visku stéttarfélags

Stjórn Fræðagarðs boðar til aukaaðalfundar þriðjudaginn 31. október kl. 17:00, í Borgartúni 6 á 4. hæð þar sem aðgengi er fyrir öll. Fundurinn er bæði stað- og fjarfundur.

Tilefni fundarins er að leggja til afgreiðslu aðalfundartillögu þess efnis að breyta nafni og lögum Fræðagarðs í þeim tilgangi að stéttarfélögunum Félagi íslenskra félagsvísindamanna (FÍF) og Stéttarfélagi bókasafns- og upplýsingafræðinga (SBU) sé gert kleift að sameinast inn í stéttarfélagið Visku (áður Fræðagarður).

Tillaga stjórnar

Stjórn Fræðagarðs leggur til við aðalfund Fræðagarðs að samþykkja samkomulag stjórna Fræðagarðs, FÍF og SBU um sameiningu í stéttarfélagið Visku, undirritað 16. október 2023.

Á aðalfundi Fræðagarðs 28. febrúar 2023 var samþykkt tillaga þess efnis að hefja viðræður við önnur stéttarfélög háskólamenntaðs fólks um að sameinast í nýtt og öflugt stéttarfélag sérfræðinga. Þann 30. mars síðastliðinn hóf stjórn Fræðagarðs formlegar viðræður við Félag íslenskra félagsvísindamanna (FÍF) og Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga (SBU) um sameiningu félaganna í stórt og öflugt stéttarfélag sem byggir á traustum og fjölbreyttum grunni og er í stakk búið að takast á við áskoranir á vinnumarkaði framtíðarinnar.

Viðræðurnar hafa gengið vonum framar og 16. október 2023 skrifuðu formenn Fræðagarðs, FÍF og SBU undir samkomulag þess efnis að sameina þessi þrjú stéttarfélög í eitt stórt stéttarfélag sem hefur fengið nafnið Viska. Viska – stéttarfélag verður stærsta aðildarfélag BHM og eitt stærsta stéttarfélag sérfræðinga á Íslandi.

F.v. Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar formaður SBU, Kristmundur Þór Ólafsson formaður FÍF og Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Fræðagarðs við undirritun samkomulags um sameiningu stéttarfélaganna þriggja.

Stjórn Fræðagarðs leggur til við aðalfund Fræðagarðs að breyta nafni og lögum félagsins í nafn og lög sameinaðs stéttarfélags Visku. Réttindi félagsfólks Fræðagarðs haldast óbreytt og félagsgjöld einnig.

Ársreikninga Fræðagarðs, FÍF og SBU síðustu þriggja ára er hægt að finna hér.

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

1. Fundur settur.

a. Skipaðir fundarstjóri og fundarritari

2. Tillaga stjórnar:

a. Stjórn Fræðagarðs leggur til við aðalfund Fræðagarðs að samþykkja samkomulag stjórna Fræðagarðs, FÍF og SBU um sameiningu í stéttarfélagið Visku, undirritað 16. október 2023.

3. Ný heildarlög borin upp til samþykktar

4. Önnur mál

Félagsfólk sem hyggst mæta á fundinn er beðið um að skrá sig.